Lygatréð
| Verð: | 6.229 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Hafnarfjörður
- Skólavörðustígur
- Smáralind
Höfundur
Vörulýsing
Uppeldi Faith er strangt og þrúgandi en ekkert fær bælt þekkingarþrá hennar eða einstaka hæfileika til að komast að leyndarmálum. En þegar mikilsmetinn faðir hennar fellur skyndilega í ónáð stendur Faith frammi fyrir ráðgátu sem kann að vera jafnvel henni ofviða.
Faith finnur dagbók föður síns sem er full af staðhæfingum manns á barmi sturlunar. Bókin greinir frá furðutré sem er þeirri náttúru gætt að ef því er sögð lygi, afhjúpar það sannleik á móti; því meiri sem lygin er, því stórbrotnari er sannleikurinn sem tréð leiðir í ljós. Leit Faith að lygatrénu leiðir hana í mikinn háska - því þar sem blekkingin laðar, þar er sannleikurinn sárastur.
Dýrleif Bjarnadóttir íslenskaði.
Lygatréð er fimm stjörnu bók - svo spennandi að hvorki ungmenni né foreldrar þeirra eiga eftir að geta lagt hana frá sér. Faith er ekki stelpa sem lætur fjölskylduna eða samfélagið kúga sig eða stöðva í leitinni að sannleikanum. Dagný Kristjánsdóttir
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Ungmennabækur
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2021
- Blaðsíðufjöldi: 528
