Hún á afmæli í dag
| Verð: | 3.999 ISK |
Vörunúmer: UGL350
Höfundur
Vörulýsing
Fimm rauð kerti á köku. Eftirvænting í lofti. Zana átti sér einskis ills von og það hvarflaði ekki að henni að þessi dagur myndi breyta öllu. Það eina sem hún óskaði sér var að syngja: Hún á afmæli í dag! Þegar yfirlögregluþjónninn Ewert Grens kemur í íbúðina í Stokkhólmi fyllir óþefur vit hans. Hann á aldrei eftir að gleyma því sem blasir við honum. Tveimur áratugum síðar kemur hann aftur í sömu íbúð. Illræmd öfl hafa snúið aftur og eru að leita að Zönu. Öllu skiptir að lögreglan verði fyrri til að finna hana.
Sænskur háspennutryllir í hæsta gæðaflokki um hefnd og svik eftir höfund metsölubókarinnar Þrír tímar.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Skáldverk þýdd - kiljur
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2021
- Blaðsíðufjöldi: 511
