Meðal hvítra skýja - Vísur frá Tang tímanum
| Verð: | 4.669 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
Vörulýsing
Meðal hvítra skýja geymir fornar og heillandi kínverskar vísur í þýðingu Hjörleifs Sveinbjörnssonar. Kveðskapurinn er frá tímum Tang-keisaraættarinnar sem ríkti fyrir meira en þúsund árum, á árabilinu 618 til 907, en kínversk ljóðlist náði þá áður óþekktum hæðum og teljast ljóðin til bókmenntagersema heimsins.
Hjörleifur hefur áður tekið saman og þýtt sýnisbók kínverskrar frásagnarlistar, Apakóngur á Silkiveginum, og deilir nú með lesendum eftirlætisvísum sínum frá blómaskeiði ljóðlistarinnar í Kína. Af mikilli list hefur hann þýtt á fjórða tug stuttra vísna eftir tuttugu skáld, misjafnlega vel þekkt, og tekið saman gagnlegan fróðleik um skáldin og skýringar við hverja vísu til að gefa innsýn í þann framandlega heim sem þær eru sprottnar úr.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Ljóð og kvæði
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2021
- Blaðsíðufjöldi: 79
