Koma jól?
| Verð: | 4.699 ISK |
Vörunúmer: ANGU523150
Hvar er varan fáanleg
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Akureyri
- Hafnarfjörður
- Ísafjörður
- Keflavík
- Skólavörðustígur
- Mjódd
- Smáralind
Höfundur
Vörulýsing
Koma jól? er jólaljóðabók eftir Hallgrím Helgason og Rán Flygenring sem kveðst á við fræga bók Jóhannesar úr Kötlum, Jólin koma. Hér er að finna nýjustu fréttir af Grýlu og Jólakettinum og jafnframt stíga hinar jökulhressu Grýludætur, systur jólasveinanna, fram úr þúsund ára löngum skugga bræðra sinna og arka til byggða, hver með sínu lagi og hrekkjabrögð í farteskinu: Bjalla, Grýlurós, Litla ljós, Fantasía, Stelpustoð, Töskubuska, Bokka, Tertuglöð, Fiturönd, Augasteinastara, Áttavillt, Svangatöng og Kortasníkja.
Kvæðin heita Koma jól?, Skógjafatíð, Jólasystur, Grýlukvæði, Grýluvísa, Jólakötturinn og Íslandsjól. Myndir bókarinnar eru ristar í dúk.
Bókarhönnun Studio Studio (Arnar Freyr Guðmundsson, Birna Geirfinnsdóttir)
Fyrir 5-105 ára
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Ljóð og kvæði
- Form: \t\t
- Útgáfuár: 2021
- Blaðsíðufjöldi: 36

