Dauðaleit
| Verð: | 6.999 ISK |
Penninn Eymundsson
- Kringlan Suður
- Ísafjörður
- Smáralind
Höfundur
Vörulýsing
Úti bíður andlit á glugga
Unglingsstúlka hverfur í undirgöngunum í Hamraborg í Kópavogi og það er eins og jörðin hafi gleypt hana.
Rannsóknarlögreglumaðurinn Halldór Kjartansson fær málið á sitt borð og sér strax að hvarfið er ískyggilega líkt hvarfi besta vinar hans þegar þeir voru strákar í sömu undirgöngum árið 1994. Vinurinn fannst aldrei. Nú kviknar þó von hjá Halldóri og hann uppgötvar tengingu á milli ungmennanna tveggja. Í kapphlaupi við tímann leggur rannsóknarlögreglumaðurinn allt undir í leitinni, en skuggar fortíðar ásækja hann og enn á ný sér hann hluti sem aðrir ekki sjá.
Dauðaleit er leifturhröð og taugatrekkjandi glæpasaga sem heldur lesendum í heljargreipum frá upphafi til enda.
Emil Hjörvar Petersen hefur sannað sig sem sagnameistari hins dulræna í íslenskum skáldskap. Hann skrifaði meðal annars hrollvekjurnar Hælið og Ó, Karítas og verðlaunabókina Víghólar.
hrollvekjurnar Hælið og Ó, Karítas og verðlaunabókina Víghólar.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - innbundin
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2022
- Blaðsíðufjöldi: 223
