Jarðsetning
| Verð: | 8.999 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Akureyri
- Hallarmúli 4
- Hafnarfjörður
- Skólavörðustígur
- Smáralind
Höfundur
Vörulýsing
Við sýnum teikningar og módel af nýjum byggingum og skálum fyrir því þegar þær rísa. Við leggjum hornsteina og höldum reisugilli. Niðurrif og jarðsetning bygginga fer hins vegar iðulega fram í kyrrþey.
Í Jarðsetningu fer höfundur með lesendur inn í stórhýsi Iðnaðarbankans við Lækjargötu og þaðan á vit hugmynda og drauma sem búa í hinu byggða. Með hversdagslíf borgarinnar í bakgrunni fléttar hún frásögn af lífi og dauða byggingar saman við sögu hugmynda og sína eigin sögu. Anna María Bogadóttir arkitekt hefur gefið út bækur um arkitektúr og manngert umhverfi og ritstýrt bókum um sama efni. Í Jarðsetningu brúar hún bilið milli arkitektúrs og bókmennta í frumlegum texta og lifandi myndum.
Höfundurinn frumsýndi samnefnda.listræna heimildarmynd árið 2021, þar sem fylgst var með niðurrifinu í Lækjargötu bæði innan og utan frá.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Fræði- og handbækur
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2022
- Blaðsíðufjöldi: 308
