Himinópið
| Verð: | 4.399 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Smáralind
Höfundur
Vörulýsing
Á brennheitum ágústdegi finnst lítill drengur látinn í bíl. Þegar Malin Fors kemur á staðinn situr móðir hans í forsælu undir tré með son sinn í fanginu. Örvæntingarfull óp hennar hafa breyst í angurværan ekka.
Rannsókn lögreglu lýkur fljótt. Svo virðist sem móðirin hafi gleymt drengnum sofandi í bílnum. Þetta vekur skiljanlega hneykslun bæjarbúa sem margir vilja að móðirin sé látin svara til saka. Næstu vikur sætir hún hatri og hótunum á netinu.
Malin veltir fyrir sér hvernig beri að refsa þeim sem hefur þegar fengið verstu mögulegu refsingu. Mitt í þeim vangaveltum er framið morð sem beinir sjónum lögreglunnar aftur að máli litla drengsins.
Mons Kallentoft er einn af þekktustu rithöfundum Svíþjóðar. Ritröð hans um Malin Fors, lögregluforingja í Linköping, hefur notið mikilla vinsælda víða um lönd. Himinópið er tólfta bókin um Malin Fors en hinar ellefu Sumardauðinn, Haustfórn, Vetrarblóð, Vorlík, Fimmta árstíðin, Englar vatnsins, Sálir vindsins, Moldrok, Brennuvargar, Vítisfnykur og Böðulskossinn hafa selst í milljónum eintaka og verið þýddar á fjölda tungumála.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Skáldverk þýdd - kiljur
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2023
- Blaðsíðufjöldi: 373
