Skráðu þig inn

og kauptu

Karfa

  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
Valmynd
  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
  • FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA

Innskráning

Nýskráning - Fyrirtæki
Nýskráning -Einstaklingar Gleymt lykilorð?
  1. Allar íslenskar bækur
  2. Lífssaga Didda Frissa

Lífssaga Didda Frissa

Sækja mynd
Image description
Verð:7.999 ISK
Vörunúmer: UGL471
Hvar er varan fáanleg

Penninn Eymundsson

  • Austurstræti 18
  • Akureyri
  • Keflavík

Höfundur

Ásmundur Friðriksson

Vörulýsing

Sigurður Friðriksson – öðru nafni Diddi Frissa – er þjóðsagnapersóna suður með sjó. Hann ólst upp við hermang og amerískar drossíur í Sandgerði og lét við það sitja að læra margföldunartöfluna í skóla. Á hverju ári var hann rekinn úr skólanum. Fáir höfðu trú á honum, enda lítill skilningur á lesblindu, ofvirkni og athyglisbresti á þeim árum. Bryggjan og slorið urðu athvarf hans.
Tólf ára gamall var hann kominn til sjós – og þar fann hann sig. Um svipað leyti byrjaði hann að drekka. Hann lifði hátt og tefldi oft á tæpasta vað, en það hafði ekki áhrif á sjómannsferilinn sem var bæði farsæll og árangursríkur. Diddi reyndist hafa sérstakt lag á að fiska meira en aðrir, ekki síst á rækjuveiðum.
Hann hætti til sjós 52ja ára og sneri sér að ferðaþjónustu. Um það og margt, margt fleira má lesa í þessari stórskemmtilegu bók þar sem Diddi segir sögur af ævintýralegu lífi sínu og samferðarmenn segja sögur af honum sjálfum svo úr verður kostuleg sagnaskemmtun, krydduð fjörlegum stílsmáta Ásmundar Friðrikssonar alþingismanns.
Fjöldi mynda prýðir bókina.

Vöruflokkur

    Íslenskar bækur, Ævisögur - íslenskar
  • Form: Innbundin
  • Útgáfuár: 2023
  • Blaðsíðufjöldi: 372
  • Staðsetningar og opnunartímar
  • Skilmálar
  • Hafa samband
  • Vildarklúbbur
  • Um Pennann Eymundsson
  • Verslanir
  • Dreifingarmiðstöð - Verkstæði
  • | Penninn ehf. - Kt. 560109-0670 - Smáratorg 3, 201 Kópavogur - Ísland, Vsknr. 100269 |

540 2000

Skiptiborð

Samband við allar verslanir