Heimsmeistari
| Verð: | 4.299 ISK |
Vörunúmer: JPV350996
Hvar er varan fáanleg
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Akureyri
- Selfoss
- Smáralind
Höfundur
Vörulýsing
Heimsmeistari er kynngimögnuð frásögn um glataðan snilling sem er ævifangi síns hrjúfa lundernis, listilega samin af sagnameistaranum Einari Kárasyni.
Í miðju köldu stríði öttu fulltrúar austurs og vesturs kappi við skákborðið í smáborginni Reykjavík. Heimsmeistaratitill var í veði og vestrið vann. Sigurvegarinn ungi var sérvitur og óbilgjarn en heimafólk hafði samúð með honum og gleymdi ekki afreki hans.
Mörgum árum síðar hefur þessi hornótti einfari komið sér í meiri háttar ónáð hjá stjórnvöldum heimalands síns og situr í japönsku fangelsi, einmana og smáður. Þá grípa velunnarar frá eyjunni í norðri til sinna ráða og sækja heimsmeistarann yfir hálfan hnöttinn en flóttinn til Íslands er dýru verði keyptur.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - innbundin
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2023
- Blaðsíðufjöldi: 128
