Læknir verður til - Innbundin
| Verð: | 3.999 ISK |
Vörunúmer: RNK1012
Hvar er varan fáanleg
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
Höfundur
Vörulýsing
Þrír ungir læknar mæta óvæntum áskorunum fyrstu ár sín í starfi. Á endalausum vöktum og yfirfullum deildum
glíma þeir við hægfara tölvukerfi og mæta fjölskrúðugum persónum og aðstæðum sem neyða þá til að endurskoða fyrri lífsgildi og hugmyndir sínar um starfið.
Í skáldsögunni Læknir verður til er skyggnst á bak við tjöldin innan heilbrigðiskerfis á þolmörkum sem svipar um margt til þess sem við þekkjum hér á landi. Með blöndu raunverulegra frásagna og skáldskapar spyr sagan áleitinna spurninga jafnt um stöðu og framtíð heilbrigðismála.
Henrik Geir Garcia er íslenskur læknir með átta ára starfsreynslu sem hefur starfað á þremur sjúkrahúsum og yfir tuttugu heilsugæslustöðvum um land allt.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - innbundin
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2023
- Blaðsíðufjöldi: 229
