Skráðu þig inn

og kauptu

Karfa

  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
Valmynd
  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
  • FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA

Innskráning

Nýskráning - Fyrirtæki
Nýskráning -Einstaklingar Gleymt lykilorð?
  1. Allar íslenskar bækur
  2. Því dæmist rétt vera

Því dæmist rétt vera

Sækja mynd
Image description
Verð:4.799 ISK
Vörunúmer: JPV351016
Hvar er varan fáanleg

Penninn Eymundsson

  • Austurstræti 18
  • Smáralind

Höfundur

Einar Már Guðmundsson

Vörulýsing

Því dæmist rétt vera er safarík saga um glæp og refsingu í litlu sjávarþorpi fyrir tvö hundruð árum. En það skyldi þó ekki vera að sá hjari veraldar sé í raun réttri nafli alheimsins?

Í Tangavík ríða hættulegar hugmyndir húsum, hugmyndir um réttlæti og jöfnuð. Á laun ráðgera menn að losa hina ríku við auðinn sem íþyngir þeim en þegar látið er til skarar skríða er yfirvöldum ekki skemmt. Glæpir ógna gildum samfélagsins og mikið liggur við að bæla niður mótþróa og uppreisnarhug; finna hina seku, dæma hart og refsa grimmilega.

Hér eru litríkir þræðirnir úr seinustu sögu Einars, Skáldlegri afbrotafræði, spunnir áfram í ýmsar áttir, atburðarásin fer í kollhnís og kraftstökk yfir ár og aldir, skáldskapur og sagnfræði togast á um satt og logið, rétt og rangt, og allt fellur þetta saman í töfrum slunginn vef að hætti höfundarins.

Einar Már Guðmundsson hefur skrifað tugi vinsælla skáldverka og hlotið fyrir þau ýmis verðlaun. Bækur hans hafa verið gefnar út víða erlendis en sérstakrar hylli nýtur hann í Danmörku þar sem nýrra verka hans er jafnan beðið með óþreyju.

Vöruflokkur

    Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - innbundin
  • Form: Innbundin
  • Útgáfuár: 2023
  • Staðsetningar og opnunartímar
  • Skilmálar
  • Hafa samband
  • Vildarklúbbur
  • Um Pennann Eymundsson
  • Verslanir
  • Dreifingarmiðstöð - Verkstæði
  • | Penninn ehf. - Kt. 560109-0670 - Smáratorg 3, 201 Kópavogur - Ísland, Vsknr. 100269 |

540 2000

Skiptiborð

Samband við allar verslanir