Skráðu þig inn

og kauptu

Karfa

  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
Valmynd
  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
  • FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA

Innskráning

Nýskráning - Fyrirtæki
Nýskráning -Einstaklingar Gleymt lykilorð?
  1. Allar íslenskar bækur
  2. Sveinn Benediktsson

Sveinn Benediktsson

Sækja mynd
Image description
Verð:8.999 ISK
Vörunúmer: UGL493
Hvar er varan fáanleg

Penninn Eymundsson

  • Austurstræti 18
  • Akureyri
  • Hafnarfjörður
  • Ísafjörður
  • Skólavörðustígur
  • Smáralind

Höfundur

Steinar J. Lúðvíksson

Vörulýsing

"Um hálfrar aldar skeið var Sveinn Benediktsson einn áhrifamesti maður í sjávarútvegi Íslendinga. Hann var stjórnarformaður Síldarverksmiðja ríkisins, forystumaður í Bæjarútgerð Reykjavíkur, stjórnarmaður í helstu hagsmunasamtökum fyrirtækja í sjávarútvegi og lét mjög að sér kveða á opinberum vettvangi um allt sem laut að sjávarútvegsmálum, auk þess sem hann rak umfangsmikla síldarvinnslu á Raufarhöfn og Seyðisfirði. Var stundum haft á orði að hann og bræður hans – Bjarni forsætisráðherra og Pétur bankastjóri – réðu fyrir landinu, svo mikil voru áhrif þeirra um skeið.
Það gustaði stundum hressilega um Svein Benediktsson. Hann var maður skapfastur og gekk vasklega fram í öllu sem hann tók sér fyrir hendur. Pólitíkin var hatrömm á þeim árum og Sveinn mætti oft harðri mótspyrnu. En framsýni hans, viljastyrkur og ráðvendni varð oftar en ekki til þess að það var hann sem stóð með pálmann í höndunum þegar upp var staðið.
Í frítíma sínum safnaði Sveinn bókum af ástríðu, hafði yndi af silungsveiði, las fornsögurnar og ljóð Einars Benediktssonar, auk þess sem hann var einn af forvígismönnum Ísaksskóla.
Öllum þessum þáttum og fleirum í ævi Sveins er gerð skil í þessari fróðlegu og skemmtilegu bók um einstakan atorkumann sem markaði djúp spor í atvinnusögu Íslendinga á tuttugustu öld."

Vöruflokkur

    Íslenskar bækur, Ævisögur - íslenskar
  • Form: Innbundin
  • Útgáfuár: 2023
  • Blaðsíðufjöldi: 441
  • Staðsetningar og opnunartímar
  • Skilmálar
  • Hafa samband
  • Vildarklúbbur
  • Um Pennann Eymundsson
  • Verslanir
  • Dreifingarmiðstöð - Verkstæði
  • | Penninn ehf. - Kt. 560109-0670 - Smáratorg 3, 201 Kópavogur - Ísland, Vsknr. 100269 |

540 2000

Skiptiborð

Samband við allar verslanir