Sjálfsbjargarviðleitni: Gagnrýn hugsun og bjargræði
| Verð: | 4.999 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Akureyri
- Keflavík
Höfundur
Vörulýsing
Sjálfsbjargarviðleitni: Gagnrýn hugsun og bjargræði er námsbók fyrir grunnskólanemendur á unglingastigi. Hún er upplýsandi, fróðleg, skemmtileg og ögrandi bók um sjálfsbjargarviðleitni sem samasemmerki fyrir gagnrýna hugsun og bjargræði. Lært er um hvað er gagnrýn hugsun, hver er uppruni hennar, hvernig hefur hún þróast og hvernig er hægt að nýta sér hana til að vega og meta upplýsingar? Samfélagið er ört vaxandi upplýsingaflæði og mikilvægt er að beita gagnrýninni hugsun og á sama tíma hvernig er hægt að huga að sínum bjargráðum. Lagt er áherslur á bjargræði eins og sjálfsmat, trú á eigin getu, sjálfstjórn, félagsfærni og að sjá tilgang með lífinu. Þessu er tvinnað saman með hugvekjum, umræðum og verkefnum sem þjálfar nemendur í að skilja og hagnýta.
Ástþór Óðinn Ólafsson er grunnskólakennari með meistaragráðu í þroskasálfræði og hefur lagt áherslur á heimspeki og sálfræði í sinni kennslu. Hefur verið að kenna nemendum hvernig eigi að styrkja sína sjálfsmynd frá sálfræðilegum og félagslegum sjónarhornum þar sem sjónum er beint að einstaklingnum og samfélaginu. Hvaða áhrif hefur það á fjölskyldu, menntun, vini, íþróttir og tómstundir. Til hliðsjónar sinnir seigluráðgjöf og heldur úti vefsíðunni Seigla: Ráðgjöf og fræðsla á Facebook.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Fræði- og handbækur
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2023
- Blaðsíðufjöldi: 49
