Sjálfið mitt: Markmið og persónuleikaeinkenni
| Verð: | 3.199 ISK |
Penninn Eymundsson
- Keflavík
Höfundur
Vörulýsing
Sjálfið mitt: Markmið og persónuleikaeinkenni er námsbók fyrir miðstig. Hún er upplýsandi, fróðleg, skemmtileg og ögrandi bók um markmið og persónuleikaeinkenni. Lært er um markmiðasetningu: skammtíma og langtímamarkmið. Persónuleikaeinkenni eins og hugrekki, ábyrgð, þolinmæði, þrautseigju, tillitssemi og hjálpsemi. Hvað skilgreinir þessi persónuleikaeinkenni og hvernig koma þau fyrir hjá einstaklingnum sjálfum og hvernig hann mótar sig í samfélaginu. Að lokum hvernig markmið og persónuleikaeinkenni spilast saman í daglegu lífi. Þessu tvennu er spunnið saman við hugvekjur, umræður og verkefni sem bæði örva og þjálfa nemendur í að skilja og hagnýta.
Ástþór Óðinn Ólafsson er grunnskólakennari með meistaragráðu í þroskasálfræði og hefur lagt áherslur á heimspeki og sálfræði í sinni kennslu. Hefur verið að kenna nemendum hvernig eigi að styrkja sína sjálfsmynd bæði frá sálfræðilegu og félagslegu sjónarhorni þar sem sjónum er beint að einstaklingnum og samfélaginu. Hvaða áhrif það hefur á fjölskyldu, menntun, vini, íþróttir og tómstundir. Til hliðsjónar sinnir seigluráðgjöf og heldur úti vefsíðunni Seigla: Ráðgjöf og fræðsla á Facebook.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Fræði- og handbækur
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2021
- Blaðsíðufjöldi: 52
