Klökkna klakatár
| Verð: | 8.499 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Akureyri
- Skólavörðustígur
- Vestmannaeyjar
- Smáralind
Höfundur
Vörulýsing
Eftir andlát þjóðfrægs rithöfundar sest ekkja hans niður og tekur til við að koma skikki á gífurlegt magn skjalasafns sem hann lét eftir sig.
Hún reynir að henda reiður á þeim ógnvænlegu upplýsingum sem koma upp úr kös gulnaðra pappíra úr slitnum plastpokum og raða þeim í tímaröð.
Hún les og tengir sögu hans við sína, enda höfðu þau átt langt samlíf og stormasamt. Hún leitar skýringa, vill vita hvað búi að baki skapbrestum hans og sviksamlegri háttsemi.
Hún kafar djúpt ofan í endurminningar sínar um samvistir þeirra, reynir að muna allt, fer úr einni minningu í aðra, þræðir þær upp á trosnaðan spotta sem svo slitnar þegar síst varir.
Hjartnæm, einlæg og átakanleg saga manns og konu sem unnast en fá ekki notið hvors annars.
Þetta er bók sem lætur engan ósnortin, rituð af óvanalegum stílþrótti og myndauðgi.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - innbundin
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2024
- Blaðsíðufjöldi: 445
