Smáblóm í eilífðinni
| Verð: | 8.299 ISK |
Penninn Eymundsson
- Akranes
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Akureyri
- Hallarmúli 4
- Hafnarfjörður
- Keflavík
- Mjódd
- Smáralind
Höfundur
Vörulýsing
Í Smáblómum í eilífðinni segir Benedikt Jóhannesson frá með sínum hætti. Hér er safnað saman ýmiss konar efni sem skrifað var af margvíslegu tilefni, eða jafnvel að tilefnislausu, á undanförnum áratugum. Kaflarnir segja frá hversdagslegum upplifunum eða vangaveltum höfundar um málefni sem hafa verið honum hugleikin þegar kaflinn var skrifaður. Hvað verður um sokka sem hverfa? Er áhugavert að skera sig upp sjálfur við kviðsliti? Er gervigreind hættuleg hjónabandinu? Hvers vegna er guð til?
Samtöl við fólk á förnum vegi verða stundum kveikjan að skrifum, en algengari uppspretta er samskipti þeirra hjóna, Vigdísar og Benedikts, sem hafa átt samleið í marga áratugi. Samtöl, símtöl og smáskilaboð milli þeirra koma við sögu. Gagnkvæmur skilningur eða jafnvel misskilningur verður stundum að stuttri sögu eða þanka.
Stjórnmálin og fréttir liðinnar stundar eru skráð á spjöld bókarinnar í frásögn, leikritum og bundnu máli þar sem ekki er alltaf farið orðrétt með. Spurningar vakna um það hvort gamni fylgir líka alvara. Ýmsir koma við sögu. Til dæmis Knold og Tott, Einar Ben og Oddný nokkur, en hver er hún?
Hér er heilmikið efni sem hægt er að innbyrða í stórum eða litlum skömmtum. Sumt þarf að lesa vandlega, jafnvel oft, en öðru gæti verið best að sleppa alveg, sem lesendur gera þá á eigin ábyrgð.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Fræði- og handbækur
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2025
- Blaðsíðufjöldi: 160
