Morðin í Dillonshúsi
| Verð: | 4.499 ISK |
Penninn Eymundsson
- Akranes
- Austurstræti 18
- Akureyri
- Hafnarfjörður
- Húsavík
- Ísafjörður
- Keflavík
- Skólavörðustígur
- Vestmannaeyjar
- Selfoss
- Smáralind
Höfundur
Vörulýsing
Örlagasaga mæðgnanna Sigríðar Ögmundsdóttur og Huldu Karenar Larsen.
Hræðilegur harm leikur átti sér stað í Dillonshúsi við Suðurgötu 2 í Reykjavík. Að morgni 26. febrúar 1953 gaf heimilisfaðirinn eigin konu sinni og þremur ungum börnum þeirra eitur og svipti svo sjálfan sig lífi. Í þessari bók er sögð saga þeirra sem við sögu komu.
Eiginkonan, Hulda Karen Larsen, ólst upp fyrstu árin í Reykjavík á þriðja áratug tuttugustu aldar, hjá einstæðri móður sinni, Sigríði Ög-mundsdóttur. Ævi Sigríðar er átakanleg saga ástar brigða, fátæktar og umkomuleysis en líka saga fagurra dyggða og mannlegrar reisnar. Sigríður þurfti að láta frá sér tvö börn í einstæðingsskap sínum en fann loks hamingjuna með góðum manni og stórum barnahópi uns harm-leikurinn skall á og mótaði fyrir lífstíð alla þá sem honum tengdust.
Þetta er bók sem lætur engan ósnortinn.
Sigríður Dúa Goldsworthy, er systur dóttir Huldu Karenar og ömmubarn Sigríðar. Aðalheimildir bókar hennar eru persónulegar frásagnir og bréf fjölskyldumeðlima. Sigríður Dúa skrifar af innsæi og nærfærni um ótrúlega ævi ömmu sinnar og hörmuleg örlög frænku sinnar og litlu barnanna þriggja.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Ævisögur - íslenskar
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2025
- Blaðsíðufjöldi: 285
