Vorblíðu njótum í anda þér hjá
| Verð: | 5.999 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Akureyri
- Smáralind
Höfundur
Vörulýsing
Bogi Pétursson var landskunnur fyrir störf sín með börnum, bæði sem forstöðumaður sumarbúðanna við Ástjörn í Kelduhverfi, í starfi sínu innan skátahreyfingarinnar og kristilegu starfi með börnum í heimabyggð sinni á Akureyri.
Í frásögn sinni rekur hann í stórum dráttum uppeldi sitt á Eskifirði, starfsferilinn í verksmiðjum SÍS og þátttöku sína í starfsmannafélaginu þar. Hann segir einnig frá ýmsum öðrum verkefnum, svo sem starfi með Ferðafélagi Akureyrar og í fangelsismálum.
Meginþungi sögunnar snýr þó að starfi hans fyrir Sjónarhæðarsöfnuðinn og rekstri sumarbúðanna á Ástjörn. Þar kynntist hann mörgum merkum mönnum, meðal annars Arthuri Gook og Sæmundi Jóhannessyni, auk fjölda samferðamanna og velunnara Ástjarnar.
Merkast er þó hið óeigingjarna starf hans á Ástjörn, þar sem hundruð barna nutu leiðsagnar og umönnunar hans áratugum saman.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Ævisögur - íslenskar
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2025
