Líf
| Verð: | 4.999 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Akureyri
- Hallarmúli 4
- Hafnarfjörður
- Ísafjörður
- Keflavík
- Skólavörðustígur
- Selfoss
- Smáralind
Höfundur
Vörulýsing
Morð er list
Rétt og rangt eru innantóm hugtök.
Fjölskyldufaðir finnst látinn á heimili sínu í Grafarholti og virðist hafa fallið fyrir eigin hendi. En við krufningu kemur í ljós örlítið frávik. Smávægilegt ósamræmi sem breytir öllu.
Guðrún Ýr Ingimarsdóttir rannsóknarlögreglumaður fær málið í sínar hendur. Hún er eldskörp og hröð í hugsun, en líka þrjósk og rekst gjarnan á veggi innan kerfisins.
Í ljós kemur að þetta mál er aðeins upphafið að miklu stærri ráðgátu. Þræðirnir liggja inn í heim valda, spillingar og leyndarmála sem einhver er tilbúinn að verja með blóði. Í skuggunum bíður sá sem skilgreinir morð ekki sem glæp, heldur list.
Líf er ófyrirsjáanlegur sálfræðitryllir sem kafar djúpt í myrkustu afkima mannlegs eðlis. Reynir Grétarsson leiðir lesandann inn í hugarheim þar sem sannleikurinn er aldrei einfaldur og siðferði er afstætt. Lesandinn er orðlaus að lestri loknum.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - innbundin
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2025
- Blaðsíðufjöldi: 280
