Umrót
| Verð: | 4.899 ISK |
Penninn Eymundsson
- Akranes
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Akureyri
- Hallarmúli 4
- Hafnarfjörður
- Húsavík
- Ísafjörður
- Keflavík
- Skólavörðustígur
- Mjódd
- Vestmannaeyjar
- Selfoss
- Smáralind
Höfundur
Vörulýsing
Þegar Rakel missir stjórnina á vel skipulögðu lífi
sínu ákveður hún að fara í sjálfskipaða útlegð í
Andalúsíu. Þar þarf hún að horfast í augu við sjálfa
sig og drauga fortíðar sem hún hefur grafið djúpt.
Rakel er áttavillt en smátt og smátt lærir hún að
feta þröngar götur á framandi slóðum. Stærsta
áskorun Rakelar er þó að kynnast sjálfri sér. Hver
er hún þegar hún er ekki lengur farsæll forstjóri?
Á sólbökuðum strætum Granada hefur Rakel
nægan tíma til að hugsa. Hafði skylduræknin verið
að drepa hana? Gæti umrótið verið lán í óláni?
Umrót er saga konu sem stendur á tímamótum
og þarf að líta um farinn veg og sættast við
fortíðina til að geta lifað lífinu til fulls.
Umrót er fjórða skáldsaga Árelíu Eydísar
Guðmundsdóttur en fyrri bækur hennar hafa
fengið góðar viðtökur gagnrýnenda og lesenda.
Frásagnarstíll Árelíu er líflegur og skemmtilegur
og hrífur lesendur með sér á nýjar slóðir.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - kiljur
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2026
- Blaðsíðufjöldi: 224
