Sigvaldi Thordarson arkitekt
| Verð: | 15.999 ISK |
Vörunúmer: HB23186
Hvar er varan fáanleg
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Akureyri
- Hafnarfjörður
- Skólavörðustígur
- Mjódd
- Smáralind
Vörulýsing
Sigvaldi Thordarson (1911-1964) er einn merkasti listamaður sinnar kynslóðar og sá arkitekt eftirstríðsáranna sem hvað kunnastur er fyrir verk sín.
Í þessari bók rekur Albína Thordarson arkitekt sögu föður síns og verka hans eins og hún sjálf upplifði hana. Einstæð frásögn hennar varpar ljósi á lítt kannaðan þátt í þróun byggingarlistar á Íslandi á 20. öld þar sem við sögu koma feðginin Sigvaldi og Albína, tveir af helstu arkitektum sinnar kynslóðar.
Bókin er samvinnuverkefni Albínu og arkitektsins Péturs H. Ármannssonar sem ritar aðfaraorð og kafla um náms- og mótunarár Sigvalda. Í bókinni er fjöldi áður óbirtra ljósmynda og teikninga ásamt skrá yfir verk arkitektsins.
