Ljóðúlfar
| Verð: | 4.499 ISK |
Vörunúmer: EYG351524
Vörulýsing
Í Ljóðúlfum leiðir Eygló Jónsdóttir lesandann um landslag sorgar og ástar, stríðs og friðar, myrkurs og birtu. Með áhrifaríkum myndum úr íslenskri náttúru, daglegu lífi og atburðum heimsins yrkir hún um sorgir samtímans og þann mátt sem felst í von, seiglu og nýju upphafi.
Hvað er það sem bærist í hjartanu
þegar vindurinn gnauðar
þegar myrkrið er svartast
þegar sorgin fyllir verundina?
Ríkir þar kærleikurinn
einn ofar hverri kröfu?
