Í húsi ömmu Rósu - Forvarsla minninganna
| Verð: | 7.399 ISK |
Vörulýsing
Rósa María Þóra Guðmundsdóttir (1917-2010) átti reyfarakennda ævi framan af. Hún var ættleidd af efnuðum hjónum og tilheyrði efri stétt Reykvíkinga á þriðja og fjórða áratug tuttugustu aldar.Hér skrifar María Karen skáldævisögu um líf ömmu sinnar og notar til þess allsérstaka nálgun. Hún lagðist í nákvæmar rannsóknir á híbýlum Rósu í Reykjavík og á Akranesi og leiðir svo lesanda af mikilli natni og frásagnargleði um hvert herbergið á fætur öðru, alla leið neðan úr kjallara upp á háaloft. Þessi rannsóknaraðferð kallar fram sögu hlutanna, tilfinningar og minningar, bæði hjá Rósu og höfundi sem bjó lengi í nálægð við ömmu sína á Akranesi. Hugrenningartengsl sem þessi opna á fjölskyldusögur með öllum sínum boðaföllum sem íslenskt samfélag gekk í gegnum á tuttugustu öld. Frásögnin spannar að mestu tímabilið frá 1917 til 1983.
