Einfætta ballerínan
| Listaverð: | 8.699 ISK |
| Verð: | 6.959 ISK |
| Þú sparar: | 1.740 ISK (-20%) |
Penninn Eymundsson
- Akranes
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Akureyri
- Hallarmúli 4
- Hafnarfjörður
- Ísafjörður
- Keflavík
- Skólavörðustígur
- Mjódd
- Selfoss
- Smáralind
Höfundur
Vörulýsing
Saga Ingu Bjarnason er dásamlegur aldarspegill, í senn tragískur, fjörugur og fyndinn, og víða er staldrað við á langri leið. Af fullri einlægni lýsir hún baráttu sinni við lesblindu og athyglisbrest á langri ævi og kveikir magnað líf í minningum um samferðafólk liðinnar tíðar. Þar er fátt dregið undan.
Hún var borin og barnfædd við Tjarnargötu í Reykjavík en þó eins og alltaf til hliðar við það borgaralega umhverfi sem mætti henni ungri. Hún heillaðist snemma af leiklistinni og leitaði víða inngöngu í heim leikhússins. Staldraði við um hríð í tilrauna- og framúrstefnuleikhúsum álfunnar, fyrst í Danmörku, síðar Bretlandi, og heim komin lagði hún íslenskri leiklist lið sem leikstjóri um áratuga skeið.
Í minningum sínum gerir Inga Bjarnason upp við ástir og sorgir, eigin takmörk og möguleika, sigra og ósigra og leitar loks sátta við liðna tíð.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Ævisögur - íslenskar
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2026
- ISBN: 9789935323484
