Innanríkið: Aðfangadagar
| Verð: | 6.999 ISK |
Höfundur
Vörulýsing
Það sem vekur okkur ugg er að vita ekki hvaða farm við eigum eftir að flytja til landsins á bakaleiðinni. Getgátur á borð við barnaleikföng og heimilistæki færa okkur ekkert nær sannleikanum.
Höfundur lokast inni í yfirgefinni byggingu í Austurbænum. En áður en það gerist nær hann að fanga ýmislegt sem hann langar til að koma í orð. Hann fer út í Gróttu og hittir þar fyrir fólk í fjölskyldu sinni, lifendur og dauða; hann sér fljúgandi plastpoka út um glugga á sjöundu hæð í Reykjavík; hann kemur við í plötubúðum og gengur um ólíkar borgir heimsins, eins og einhver flâneur. Hann sankar að sér allra handa aðföngum. Líkt og í síðustu bók sinni, Innanríkið Alexíus, veit hann stundum ekki hvort hlutirnir verði upprunalega til í höfði hans eða séu aðfengnir hann veit reyndar ekki hvort einhver munur er á þessu tvennu.
Bragi Ólafsson er fæddur í Reykjavík árið 1962. Fyrsta bók hans, ljóðabókin Dragsúgur, kom út 1986. Meðal skáldsagna Braga eru Hvíldardagar, Samkvæmisleikir, Fjarveran og Sögumaður. Fyrir tveimur árum kom út bók hans Innanríkið Alexíus, og er þessi bók hér, Innanríkið Aðfangadagar, sjálfstætt framhald. Á þessu ári kemur einnig út ljóðaúrval Braga, Á horni Bayswater Road og Lækjargötu 100 og eitthvað ljóð, 19862026.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - kiljur
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2026
- ISBN: 9789935323859
