Tímabundin - ástarsaga
| Verð: | 8.699 ISK |
Höfundur
Vörulýsing
Árið er 2033. Ríkisstjórnin hyggst leggja fram umdeilt frumvarp um að leyfa ófrjósemisaðgerðir á börnum. Magnea er þingmaður í stjórnarandstöðu og staðráðin í að beita sér af alefli gegn málinu. Á sama tíma eru blikur á lofti í einkalífinu. Tómas, eiginmaður hennar, er spendýrafræðingur sem glímir við erfiða drauga fortíðar.
Smám saman þyngist undiraldan og uppgjör virðist óumflýjanlegt.
Tímabundin ástarsaga er óvenjuleg saga úr náinni framtíð þar sem fléttað er saman örlögum nokkurra persóna sem eru skýrt dregnar. Um leið er brugðið upp ísmeygilegri mynd af þjóðfélagi sem er í senn kunnuglegt og ekki og velt upp áleitnum spurningum um uppeldi, hugsjónir, forsjárhyggju og hvort við höfum gengið til góðs.
Kristján Hrafn Guðmundsson sendi síðast frá sér ljóðsöguna Vöggudýrabæ (2023) sem vakti mikla athygli. Rétt eins og hún er Tímabundin ástarsaga samin af skáldlegu innsæi, húmor og þekkingu.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - innbundin
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2026
- Blaðsíðufjöldi: 288
- ISBN: 978-9935-30-497-1
