Sigurður Hansen í Kakalaskála - Nokkur ævintýri úr lífi
| Verð: | 8.699 ISK |
Penninn Eymundsson
- Akranes
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Akureyri
- Vestmannaeyjar
- Smáralind
Vörulýsing
Sigurður Hansen í Kringlumýri í Skagafirði er orðinn hálfgerð goðsögn í lifanda lífi. Á efri árum sviðsetti hann Haugsnesbardaga, mannskæðustu átök Íslandssögunnar, í túnfætinum heima með yfir þúsund grjóthnullungum og opnaði síðan menningarsetur tengt Sturlungu í stórum skála sem áður hýsti minkarækt. En hver er Sigurður Hansen?
Hér fljúga vísur, hér er Siggi nánast farinn fram af þverhnípi á ýtu í blindbyl, hann bjargast naumlega eftir að hafa steypst niður laxastiga, hér segir af smalamennsku í Austurdal í Skagafirði, íslenskum hestum og hreindýrum í Lapplandi, það er dreypt á Kakala sem mér tekst einhvernveginn stundum að verða mér úti um
Einar Kárason skrifar sögu Sigurðar Hansen af alkunnri sagnagleði. Þótt Einar sé Reykvíkingur af vestfirskum ættum finnst honum að leiðarlokum líka vera kominn vottur af Skagfirðingi í sálina.
