Aftur til Pompei kilja
| Verð: | 3.999 ISK |
Höfundur
Vörulýsing
Bókin fjallar um Ramónu sem fer í skólaferðalag
til Ítalíu til að skoða uppgröftinn í borginni
Pompei, borginni sem grófst undir ösku þegar
eldfjallið Vesúvíus gaus árið 79 e. Kr. Ramónu
er hálf ómótt og hún fær undarlega tilfinningu í
allan líkamann þegar hún skoðar gifsafsteypur af
íbúum borgarinnar sem fórust í eldgosinu. Hún
skríður undir bekk til að hvíla sig og
steinsofnar.
Skyndilega vaknar hún í fornri borg
sem iðar af mannlífi. Hún hefur flust til í tíma
og er stödd í Pompei fyrir eldgosið! Hún verður
dauðskelkuð. Hún veit að borgin mun eyðast og
allir íbúarnir farast, líka hún og Theó vinur
hennar, sem hún kynntist í Pompei, ef þeim tekst
ekki að forða sér í tæka tíð. En hún veit ekki
hvenær eldfjallið Vesúvíus fer að gjósa. Verður
það eftir hundrað ár, tíu ár eða tíu mínútur ...
Vöruflokkur
-
Barnabækur, Unglingabækur þýddar - kiljur
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2009
- Útgefandi: Urður bókafélag
- Blaðsíðufjöldi: 174
- ISBN: 997999312X

