SÖFNUN OG MEÐFERÐ PERSÓNUUPPLÝSINGA
Penninn kann að safna, nota, geyma eða flytja mismunandi flokka persónuupplýsinga um Vildarklúbbsmeðlimi sem skipta má í eftirfarandi flokka:
Auðkennisupplýsingar: Nafn, kennitala og kyn.
Samskiptaupplýsingar: Póstnúmer & tölvupóstur.
Upplýsingar um kaupsögu: Yfirlit yfir þær vörur sem keyptar hafa verið í gegnum Vildarklúbb Pennans Eymundsson.
Upplýsingar um markaðssetningu: Upplýsingar sem tengjast vali Vildarklúbbsmeðlims á því hvort Pennanum sé heimilt að senda honum markaðsefni og viðbrögðum hans við því markaðsefni.
Penninn safnar ekki viðkvæmum persónuupplýsingum um kynþátt eða þjóðernislegan uppruna, trúarbrögð eða heimspekilega sannfæringu, kynlíf, kynhneigð, stjórnmálaskoðanir, stéttarfélagsaðild, heilsufar, erfðafræðilegum upplýsingum eða lífkennaupplýsingum. Það sama á við um upplýsingar um sakfellingar í refsimálum eða refsiverð brot.
Penninn notar mismunandi aðferðir við söfnun persónuupplýsinga frá Vildarklúbbsmeðlimum. Hér að neðan eru dæmi um með hvaða hætti Penninn safnar persónuupplýsingum:
Söfnun upplýsinga beint frá Vildarklúbbsmeðlim sjálfum
Penninn kann að safna auðkennis- og samskiptaupplýsingum beint frá Vildarklúbbsmeðlimum þegar þeir skrá sig í Vildarklúbb Pennans Eymundsson, eiga viðskipti í verslun Pennans Eymundsson í gegnum Vildarklúbb eða láta Pennanum þær í té með öðrum hætti.
Söfnun upplýsinga frá þriðja aðila
Penninn kaupir aðgang að grunnskrá Þjóðskrá vegna starfsemi sinnar þar sem safnað er auðkennis- og samskiptaupplýsingum, s.s. nafn, kennitölu og heimilisfangi.
TILGANGUR VINNSLU
Penninn kann að vinna auðkennisupplýsingar og kaupsögu Vildarklúbbsmeðlima til að greina þarfir viðskiptavina með þeirra hagsmuni að leiðarljósi. Með þeim hætti getur Penninn ákveðið hvaða vörur eða þjónusta höfða til Vildarklúbbsmeðlima og sent þeim markaðsefni.
Þeir Vildarklúbbsmeðlimir sem hafa skráð sig í Vildarklúbb Pennans Eymundsson munu fá sent markaðsefni, að því gefnu að þeir hafi ekki afhakað (e. opt out) að þeir vilji fá sent markaðsefni.
Vildarklúbbsmeðlimir geta hvenær sem er óskað eftir að ekki verði sent markaðsefni til þeirra með því að afskrá sig af póstlista. Hægt er að gera það með því að smella á tengil sem er neðst í öllum tölvupóstum frá Vildarklúbbi Pennans Eymundsson
Tekið skal fram að ef Vildarklúbbsmeðlimur afskráir sig af póstlista vegna markaðsefnis þá er Pennanum ennþá heimilt að vinna persónuupplýsingar sem tengjast kaupum á vöru og viðskiptasögu.
Penninn mun aðeins vinna persónuupplýsingar í þeim tilgangi sem var upphaflega fyrir söfnun þeirra eða í öðrum tilgangi sem samrýmist upphaflegum tilgangi. Komi til þess að Penninn muni vinna persónuupplýsingar Vildarklúbbsmeðlima í nýjum tilgangi sem samrýmist ekki upphaflegum tilgangi mun Penninn upplýsa um slíka vinnslu og á hvaða lagaheimild hún byggir.
MIÐLUN PERSÓNUUPPLÝSINGA TIL ÞRIÐJU AÐILA
Penninn miðlar engum persónuupplýsingum til þriðja aðila.
RÉTTINDI VILDARKLÚBBSMEÐLIMA
Í vissum tilvikum hafa Vildarklúbbsmeðlimir neðangreind réttindi samkvæmt persónuverndarlögum:
Réttur til aðgangs að persónuupplýsingum
Vildarklúbbsmeðlimir hafa rétt til að fá staðfestingu á því hvort unnið sé með persónuupplýsingar þeirra og til aðgangs að eigin persónuupplýsingum.
Réttur til leiðréttingar á persónuupplýsingum
Vildarklúbbsmeðlimir hafa rétt til að láta leiðrétta persónuupplýsingar sem Penninn geymir um þá. Það gerir Vildarklúbbsmeðlimum kleift að leiðrétta ófullkomnar eða ónákvæmar upplýsingar um þá.
Réttur til eyðingar á persónuupplýsingum
Vildarklúbbsmeðlimir geta haft rétt til þess að óska eftir að persónuupplýsingum þeirra sé eytt í ákveðnum tilfellum. Sá réttur getur til dæmis átt við ef tilgangur fyrir vinnslu er ekki lengur til staðar, Vildarklúbbsmeðlimur hefur með árangursríkum hætti andmælt vinnslu eða Penninn hefur unnið persónuupplýsingar Vildarklúbbsmeðlims með ólögmætum hætti.
Tekið skal fram að réttur til eyðingar er ekki fortakslaus og Penninn getur t.d. hafnað beiðni um eyðingu persónuupplýsinga þegar lög kveða á um ákveðin varðveislutíma upplýsinga.
Réttur til að andmæla vinnslu
Vildarklúbbsmeðlimir hafa rétt til þess að andmæla vinnslu persónuupplýsinga vegna beinnar markaðssetningar.
Réttur til að takmarka vinnslu
Vildarklúbbsmeðlimir hafa rétt til þess að takmarka vinnslu persónuupplýsinga í ákveðnum tilfellum. Dæmi um slík tilvik gæti verið að Vildarklúbbsmeðlimur hafi óskað eftir að kannaður sé áreiðanleiki persónuupplýsinganna eða hann hefur andmælt vinnslu og staðfesta þarf hvort lögmætir hagsmunir Penninn gangi framar hagsmunum Vildarklúbbsmeðlimsins.
Réttur til flutnings persónuupplýsinga
Vildarklúbbsmeðlimir geta haft rétt til þess að flytja persónuupplýsingar til þriðja aðila á skipulegu, algengu og tölvulesanlegu sniði. Sá réttur á þó einungis við ef vinnsla hefur verið byggð á grundvelli samþykkis eða þegar vinnsla persónuupplýsinga hefur verið byggð á framkvæmd á samningi.
Réttur til að draga til baka samþykki
Vildarklúbbsmeðlimir sem gefið hafa samþykki sitt fyrir vinnslu persónuupplýsinga hafa rétt til að draga það samþykki til baka. Dragi Vildarklúbbsmeðlimur til baka samþykki sitt mun það þó ekki hafa áhrif á þá vinnslu sem átti sér stað áður en samþykki var dregið til baka. Ef Vildarklúbbsmeðlimur dregur samþykki sitt til baka getur myndast sú staða að Penninn geti ekki veitt ákveðna þjónustu til hans.
Réttur til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd
Vildarklúbbsmeðlimir hafa rétt til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd vegna meðferðar á persónuupplýsingum sínum. Komi upp ágreiningur um meðferð persónuupplýsinga óskar Penninn þó eftir tækifæri til að leysa úr þeim ágreiningi áður en send er kvörtun til Persónuverndar.
Upplýsingar um Persónuvernd má finna á personuvernd.is.
Hafir þú einhverjar spurningar eða athugasemdir hvetjum við þig til að hafa samband við Pennann á netfangið [email protected].