Skráðu þig inn

og kauptu

Karfa

  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
Valmynd
  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
  • FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA

Innskráning

Nýskráning - Fyrirtæki
Nýskráning -Einstaklingar Gleymt lykilorð?
  1. Allar íslenskar bækur
  2. Geðleikhús Moreno
Sækja mynd
Image description

Geðleikhús Moreno

Verð:6.099 ISK

Geðleikhús Moreno fjallar um sykódrama en það skilgreinir höfundur sem sjálfstæða listgrein á tvöföldum jaðri, annars vegar í heimi sviðslista og hins vegar innan geðlæknisfræði. Gerð er grein fyrir uppbyggingu vinnulotu í sykódrama, hugmyndafræðinni sem þar liggur að baki og tækninni sem beitt er. Einnig er sagt frá starfsferli Jacobs Levy Moreno sem lagði grunninn að sykódrama og varð með því frumkvöðull í hópmeðferð í geðlækningum.

Geðleikhús Moreno er fyrsta rit sinnar tegundar á íslensku. Bókin brýtur einnig blað í alþjóðlegum rannsóknum á sykódrama þar sem höfundur sýnir fram á að Moreno notfærir sér formgerð fornra vígslusiða um heim allan í uppbyggingu á sykódrama. Auk þess greinir hann frá sláandi líkindum milli niðurstaðna Bessels van der Kolk, höfundar The Body Keeps the Score, á áhrifum vísindalegrar meðferðar áfalla á heilastarfsemi mannsins og hugmyndum Moreno um virkni geðleikhússins.

Trausti Ólafsson var leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar um þriggja ára skeið. Hann lauk doktorsprófi í leikhúsfræðum og diplóma-prófi í sykódrama til starfsréttinda í Englandi árið 2003. Síðan hefur hann að staðaldri leitt hópa í geðleikhúsi. Til þess að dýpka skilning á geðleikhúsi segir Trausti í bók sinni stöku brot úr eigin sykódramasögu. Einnig dregur hann upp hliðstæður milli geðleikhússins, fátæks leikhúss Jerzy Grotowski og grimmdarleikhúss Antonins Artaud.

Á undanförnum árum hefur Trausti kennt fjölda námskeiða við Háskóla Íslands og Listaháskóla Íslands. Hann hefur verið leikhúsgagnrýnandi í Víðsjá á Rás 1 frá haustinu 2023.

Íslenskar bækur, Fræði- og handbækur
Vörunúmer: SKGU991706
Hvar er varan fáanleg

Penninn Eymundsson

  • Austurstræti 18
  • Kringlan Suður
  • Hafnarfjörður
  • Skólavörðustígur
  • Smáralind
Fjöldi: 
  • hvert 1

    0
  • stykki

    hvert 1

    0
SpecialOrder: 
  • Staðsetningar og opnunartímar
  • Skilmálar
  • Hafa samband
  • Vildarklúbbur
  • Um Pennann Eymundsson
  • Verslanir
  • Dreifingarmiðstöð - Verkstæði
  • | Penninn ehf. - Kt. 560109-0670 - Smáratorg 3, 201 Kópavogur - Ísland, Vsknr. 100269 |

540 2000

Skiptiborð

Samband við allar verslanir