Skráðu þig inn

og kauptu

Karfa

  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Púsl & Spil
  • HAY
  • Opnunartímar
FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
Valmynd
  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Púsl & Spil
  • HAY
  • Opnunartímar
  • FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA

Innskráning

Nýskráning - Fyrirtæki
Nýskráning -Einstaklingar Gleymt lykilorð?
  • Algengar spurningar
  • Atvinnuumsókn
  • Blogg
  • Hafa samband
  • Dreifingarmiðstöð og verkstæði
  • Ritfanga- og húsgagnalager
  • Saga Pennans og Eymundsson
  • Sérpöntun
  • Siðareglur
  • Starfsfólk
  • Skilareglur
  • Skilmálar vefverslunar
  • Stefnur
  • Styrkir
  • Umsókn um reikningsviðskipti
  • Verklagsreglur
  • Verslanir Pennans Eymundsson
  • About us
Valmynd
Sýna valmynd
  1. Um Pennann Eymundsson
  2. Skilmálar vefverslunar

Skilmálar vefverslunar

Almennt

Penninn.is áskilur sér rétt til að hafna pöntunum, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Þetta á einnig við ef um villur í reiknireglum vefverslunnar eiga sér stað.

Afhending vöru og Áhættuskipti.

Penninn dreifir vörum til viðskiptavina sinna á höfuðborgarsvæðinu. Viðskiptavinur sem pantar vöru til sendingar utan höfuðborgarsvæðisins óskar þar með eftir flutningi vörunnar á viðkomandi stað. Komi ekki fram ósk um annað verður vara send með Póstinum. Sendingarkostnaður er reiknaður út frá gjaldskrá Póstsins eða annars tilgreinds flutningsaðila, með tilliti til áfangastaðar og fjölda vara, stærð þeirra og þyngdar. Reynt er eftir fremsta megni að afgreiða allar pantanir næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar viðkomandi flutningsaðila um afhendingu vöru. 

Vara afhent á höfuðborgarsvæðinu telst afhent þegar viðskiptavinur hefur veitt henni viðtöku og tekur viðskiptavinur þá við áhættu af söluhlut. Hafi hlut ekki verið veitt viðtaka á réttum tíma færist áhættan einnig í því tilviki yfir til viðskiptavinar.

Að öðru leyti telst vara afhent þegar viðskiptavini er kunnugt um að hann geti vitjað hennar hjá flutningsaðila. Áhættan af því að vara skemmist flyst yfir til neytanda þegar hún hefur verið afhent kaupanda.

Uppgefinn afhendingartími skal standa nema ef varan er ekki til á lager vegna villu í hugbúnaði eða rangrar birgðastöðu þá mun varan verða afhent við fyrsta tækifæri þó eigi síðar en innan 3ja virkra daga sé þess frekast kostur.

Sendingarkostnaður fyrir húsgögn er kr. 8.310 og afhendingartími fyrir húsgögn sem send eru heim eru allt að 3 virkir dagar. Á álagstímum og stórhátíðum getur þessi afhendingartími lengst, við reynum ávalt að standa við 3 virka daga í afhendingu en það getur lengst ef álag er mikið.

Skilafrestur

Kaupandi vöru í fjarsölu hefur 14 daga frá afhendingu til að hætta við kaupin með tilkynningu til seljanda. Neytandi ber ábyrgð á allri verðrýrnun sem á vörunni annarri en þeirri sem nauðsynleg er til að staðfesta eiginleika vöru, einkenni og virkni. Neytendi hefur þó ekki rétt til að falla frá samningi ef við eiga skilyrði 18. gr. laga nr. 16/2016.

Hér má lesa nánari upplýsingar um skilareglur.

Réttur til að falla frá kaupum.

Viðskiptavinur sem kaupir vöru á netinu getur fallið frá kaupnum innan 14 daga. Ákveði viðskiptavinur að falla frá samningi ber honum að tilkynna Pennanum Eymundsson um það á þar til gerðu eyðublaði sem finna má í viðauka við reglugerð nr. 435/2016 eða senda seljanda yfirlýsingu með öðrum skriflegum hætti. Viðskiptavinur ber allan kostnað við að skila vöru, þar á meðal póstsendingarkostnað ef um það er að ræða.

Gölluð vara

Sé vara gölluð á viðskiptavinur rétt á úrbótum eða afhendingu nýs söluhlutar. Sé vara gölluð greiðir Penninn Eymundsson allan kostnað sem gæti fallið til við sendingu vörunnar. Viðskiptavinur getur einnig átt rétt á afslætti eða riftun. Ábyrgðartími vegna galla er almennt tvö ár en getur verið allt að fimm ár ef vöru er ætlaður lengri endingartími en almennt getur talist og verður viðskiptavinur að leggja fram kvörtun innan þessara tímamarka.

Netverð

Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara. Tilboð í vefverslun gilda í sumum tilfellum eingöngu fyrir vefverslun í ákveðin tíma. Með sama hætti  gilda tilboð í verslunum Pennans Eymundsson ekki alltaf í vefverslun.

Skattar og gjöld

Öll verð í netversluninni eru með virðisaukaskatti og reikningar eru gefnir út með virðisaukaskatti.

Sendingarkostnaður

Sendingarkostnaður er reiknaður útfrá gjaldskrá Póstins með tilliti til áfangastaðar og fjölda vara, stærð þeirra og þyngd. Gjaldskrá Póstsins má nálgast á heimasíðu fyrirtækisins.  Fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu í reikningsviðskiptum greiða fast verð 2.999 kr. fyrir sendingar, en ef pantað er fyrir meira en 30.000 kr. fellur sendingarkostnaður niður.

Sendingarkostnaður fyrir húsgögn er 7.990. innan höfuðborgarsvæðisins. Afhendingartími fyrir heimsend húsgögn er allt að 3 virkir dagar
Ef senda á vöru út á land leggst aukalega kostnaður frá flutningsfyrirtæki á kostnað kaupanda og tekur allt að 3 virka daga að afgreiða vörur á næsta flutningsstað.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Notkun á persónuupplýsingum

Sendingar úr kerfi Vildarklúbbs Eymundsson kunna að nota upplýsingar, t.d. búsetu og aldur til að útbúa viðeigandi skilaboð til einstakra meðlima klúbbsins. Þessar upplýsingar eru aldrei afhentar þriðja aðila. Meðlimir klúbbsins geta ætíð afskráð sig og þannig neitað fyrirtækinu notkun á slíkum upplýsingum.

Ágreiningur:

Komi upp ágreiningur milli seljanda og viðskiptavinar getur viðskiptavinur leitað til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa, Borgartúni 21, 105 Reykjavík. Nefndin starfar á grundvelli laga nr. 81/2019 og er sjálfstæð og óháð opinber úrskurðarnefnd sem úrskurðar í ágreiningsmálum milli neytenda og seljenda um flestar gerðir samninga um kaup á vöru og þjónustu (kvth.is).

Varnarþing

Um samning þennan gilda íslensk lög. Rísi mál vegna hans, skal það rekið fyrir íslenskum dómstóli.
Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 46/0000, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003, sem og ákvæði laga um neytendasamninga, nr. 16/2016.

Afhendingarskilmálar

Afhendingar tími vöru

Afhending miðast við útgáfudag reiknings. Tekið er fram í kaupferlinu við hverju má búast  miðað við valda sendingarleið. Seljandi afhendir vörur einungis innanlands með viðurkenndum flutningsaðilum.

Ef afhendingu vöru seinkar af völdum seljanda mun það verða tilkynnt kaupanda í tölvupósti eða með símtali ásamt upplýsingum um hvenær pöntunin verður tilbúin til afhendingar.

Afhending úr vefverslun Penninn Eymundsson

Penninn Eymundsson kemur þeim pöntunum á pósthús daglega sem borist hafa fyrir kl 12.00 á hádegi frá mánudegi – föstudags og varan mun berast kaupanda á næsta pósthús eða í heimkeyrslu með póstinum (þar sem það er í boði). Varan ætti að vera komin á næsta pósthús eftir 1-3 daga eftir landssvæðum og þjónustustigi Póstsins á svæði kaupanda.

Á álgstímum og stórhátíðum getur þessi afhendingartími lengst, við reynum ávalt að standa við 3 virka daga í afhendingu en það getur lengst ef álag er mikið. 

Pantanir vegna húsgagna geta tekið allt að 3 dögum að berast til flutningsaðila.

Ef það hentar einhverra hluta vegna ekki skal kaupandi greiða kostnaðinn innanbæjar við það að koma vörunni á annan flutningsaðila t.d. leigubíl, sendibíl, flug, flutningabíl, skip o.s.frv. ef kaupandi vill nýta sér aðra flutningsaðila en Póstinn.

Skemmd vara

Allar skemmdir á vörum sem verða hjá flutningsaðila eru alfarið á hans ábyrgð og skal að fullu bætt viðskiptavininum samkvæmt skilmálum flutningsaðilans. Skemmdir eftir að vara hefur verið afhent er á ábyrgð kaupanda.

Vöruafhending Penninn Eymundsson

Afhending vöru er með Póstinum og samkvæmt þeirra gjaldskrá.

Greiðslur

Greiðsluleiðir eru staðgreiðsla, póstkröfur, kortafærslur frá öllum helstu greiðslukorta útgefendum eða raðgreiðslur.  Varan er ekki send af stað fyrr en gengið hefur verið frá fullnaðargreiðslu til Pennanns.

  • Staðsetningar og opnunartímar
  • Skilmálar
  • Hafa samband
  • Vildarklúbbur
  • Um Pennann Eymundsson
  • Verslanir
  • Dreifingarmiðstöð - Verkstæði
  • | Penninn ehf. - Kt. 560109-0670 - Skeifan 10, 108 Reykjavík - Ísland, Vsknr. 100269 |

540 2000

Skiptiborð

Samband við allar verslanir