Hönnunarmerkið Fólk er nýsköpunarfyrirtæki stofnað árið 2017 til að ýta undir hönnun og framleiðslu sem styður sjálfbærni og hringrás hráefna auk þess að vera stökkpallur fyrir íslenska hönnuði á erlendri grundu.

Vörur fyrirtækisins eru hannaðar eftir sérstökum skilyrðum þar sem meðal annars eru einungis notuð náttúruleg og endurunnin hráefni auk þess sem ekkert plast er notað í umbúðum. FÓLK vinnur að tilraunum á notkun á nýjum endurunnum hráefnum við framleiðslu hönnunarvöru í samstarfi við íslensk framleiðslufyrirtæki. Fyrirtækið hlaut nýverið styrk úr Hönnunarsjóði og Frumkvöðlasjóði Íslandsbanka til verkefnisins Hringrásarvæn hönnun.

Samstarfshönnuðir FÓLK Reykjavík eru þau Jóni Helgi Hólmgeirsson sem hlaut hönnunarverðlaun ársins árið 2019 sem yfirhönnuður Genki Instruments, Ólína Rögnudóttir og Theódóra Alfreðsdóttir sem tilnefnd var til Norrænu Formex hönnunarverðlaunanna árið 2019.

Vörur FÓLK hafa verið sýndar á hönnunarsýningum í Stokkhólmi og París og hefur fyrirtækið nýverið tryggt sér samninga við dreifingaraðila í 6 löndum.

Venti

Venti-línan fæddist af því að sjá fegurð þar sem aðrir sáu úrgang – í afgangsstáli úr framleiðslu loftræstikerfa. Hönnuð af Marcus Götschl fyrir FÓLK umbreytir línan að hluta endurunnu iðnaðarstáli í borð sem eru létt í ásýnd, tímalaus í hönnun og gerð til að fylgja þér um ókomin ár.

Með fjórum fjölhæfum stærðum fellur línan náttúrulega að ýmsum hlutverkum á heimilum, skrifstofum og gistirýmum.

Inka

Inka línan er klassísk íslensk hönnun. Varan er endingargóð og hefur lifað gegnum fleiri kynslóðir.

Form Inka einkennist af tveim ferningum, tengdum saman með láréttri línu sem skapa form sófans og stólsins. Armarnir eru breiðir, með pláss fyrir olnboga, góða bók eða kaffibolla. 

Gunnar Magnússon er eitt af stærstu nöfnunum í íslenskri hönnunarsögu og húsgögn hans hafa vakið athygli á alþjóðlegum vettvangi. Inka línan er ein af tímalausu og klassísku vörulínum hans, og sú fyrsta sem FÓLK hefur endurútgefið.

Vörulínan er upprunalega hönnuð árið 1962 og FÓLK hefur nú hafið endurútgáfu á vörum Gunnars, í samræmi við sjálfbærni- og hringrásaráherslur fyrirtækisins.