Herman Miller skrifborðsstólar

Herman Miller er 115 ára amerískt fyrirtæki sem er leiðandi í þróun á skrifborðsstólum. Fyrirtækið hefur átt í samstarfi við marga virtustu hönnuði heims og hlotið ótal viðurkenningar fyrir hönnun, gæði og sjálfbærni. Skrifborðsstólar frá Herman Miller standast strangar gæðaprófanir, eru allt að 96% endurvinnanlegir og hafa 12 ára ábyrgð.

 

 

Aeron

Aeron var fyrsti skrifborðstóll heims með sæti og bak úr engu nema neti. Stóllinn var byltingarkenndur þegar hann kom fyrst á markað árið 1994 þar sem þetta var í fyrsta sinn sem að sterkt teygjanlegt net var notað í skrifborðsstól. Þessi eiginleiki vakti mikla lukku og seldist stóllinn í milljónum eintaka. Enn þá daginn í dag er Aeron talinn einn af allra bestu skrifborðsstólum sem finnast og er hann mest seldi skrifborðsstóll fyrr og síðar.

Smelltu hér til að skoða Aeron stólinn

 

COSM

Cosm skrifborðsstóllinn var valinn einn af 100 bestu uppfinningum ársins 2019 af tímaritinu TIME Magazine. Cosm lagar sig að líkamsbyggingu og þyngd notandans og stillir sig sjálfur. Stóllinn hefur unnið til 8 alþjóðlegra viðurkenninga fyrir framúrskarandi vinnuvistfræðilega eiginleika og hönnun. 

Smelltu hér til að skoða Cosm stólinn

 

EMBODY

Yfir 20 sérfræðingar úr mismunandi heilbrigðisgreinum komu að hönnun og þróun Embody stólsins. Skrifborðsstóllinn veitir einstaklega góðan bakstuðning og er með fjölmarga stillimöguleika til að koma til móts við líkamsbyggingar þeirra sem í stólnum sitja.

Smelltu hér til að skoða Embody stólinn

 

Mirra 2

Mirra 2 er einn af mest seldu skrifborðsstólum Pennans. Hann er einstaklega þægilegur með sérhönnuði neti í setu og sveigjanlegu gataplasti í baki. Stóllinn hefur fjölda stillimöguleika og er 96% endurvinnanlegur.

Smelltu hér til að skoða Mirra 2 stólinn

 

SAYL

Sayl er nútímalegur, vel hannaður og hefur allar helstu stillingar. Verkfræðilegu eiginleikar og útlit Golden Gate brúarinnar í San Fransisco veitti hönnuðinum mikin innblástur við hönnun stólsins. Stóllinn hefur unnið til þriggja alþjóðlegra viðurkenninga fyrir framúrskarandi hönnun.

Smelltu hér til að skoða Sayl stólinn