- Tilboð mánaðarins
- Tilboðshornið
- Heimilishúsgögn og gjafavörur
- Heimaskrifstofan
- Næðislausnir
- Skrifborðs- og vinnustólar
- Skrifstofuhúsgögn
- Fundar- og gestastólar
- Biðsvæðishúsgögn
- Húsgögn fyrir veitingaumhverfi
- Staflastólar, felliborð og ráðstefnusæti
- Skólahúsgögn
- Leikskólahúsgögn
- Húsgögn fyrir hjúkrunarheimili og sjúkrahús
- Töflur, sýningartjöld og fylgihlutir
- Húsgagnalager og verkstæði
- Stafræn tímarit og bæklingar
- Verkefnamyndir
- Verkefnamyndir - Yfirlit
- Verkefnamyndir - Arctic Green
- Verkefnamyndir - Asana
- Verkefnamyndir - Framheimilið
- Verkefnamyndir - Jiko
- Verkefnamyndir - Kvika
- Verkefnamyndir - Sigtún á Selfossi
- Verkefnamyndir - Skrifstofuhótel í Ármúla 13
- Verkefnamyndir - Skrifstofuhótelið Akkur
- Verkefnamyndir - Vegagerðin
- Verkefnamyndir - Vestmannaeyjabær
- Flensborg
- Golfklúbbur Grindavíkur
- PK-Verk
- Verkefnamyndir - Íslandshótel
- Áshamar

Nýir snjallari næðisklefar frá Framery
Ný vörulína Framery snjall-næðisklefa hefur litið dagsins ljós. Framery er brautryðjandi í hönnun og framleiðslu á hljóðeinangrandi klefum og leiðandi aðili á heimsvísu í sölu og þróun þeirra. Fyrirtækið hefur það að leiðarljósi að auðvelda fólki að einbeita sér að því sem raunverulega skiptir máli og koma hlutum í verk. Stígðu inn í nýja tíma á vinnustaðnum með hjálp brautryðjandi tækninýjunga frá Framery.
Áskorun Framery felst í því að finna jafnvægi milli sígildrar hönnunar og nýmóðins tæknilausna sem mæta kröfum vinnustaða nútímans. Það var kominn tími til að endurskoða hugmyndina um skrifstofuna og Framery spratt upp úr þörfinni á áframhaldandi mótun atvinnulífsins til framtíðar. Með tæknidrifnum vörum, lausnum, verkfærum og þjónustu leitast Framery við að bæta vinnuflæði með gæðum og úthugsuðum lausnum.
Ný lína Framery heldur í grunngildi forvera sinna; hágæða hljóðeinangrun, leiðandi loftræstibúnað og útpælda lýsingu sem hámarkar upplifun notenda. Áhersla er lögð á þægindi og fjölbreytni í útliti sem gerir notendum kleift að sníða hvert rými eftir sínum þörfum.
Stillanlegt loftflæði og mismunandi ljósastillingar tryggja hreint og gott andrúmsloft á meðan 4G tenging hvers rýmis fyrir sig tengir saman teymi og einfaldar bókun rýma. 8” snertiskjár gerir notendum kleift að nálgast einstaklingsmiðaðar stillingar í háskerpu og með nýjum tæknilausnum á borð við nálægðarskynjara, sjálfvirka loftræstingu og innbyggðan hávaðadeyfi verður til ný lína Framery sem boðar breytta tíma á vinnustöðum samtímans.
Þú stýrir ferðinni enda býðst viðskiptavinum að velja tækni, húsgögn og útlit rýmanna eftir eigin höfði. Rúmlega 3.000 mögulegar litasamsetningar og fjöldinn allur af uppfærslumöguleikum tryggja einstaklingsmiðuð vinnurými handa ólíkum hópum fólks.
Fyrirspurn Framery
Heimsklassa hljóðeinangrun og framsæknar tækninýjungar.
Framery Four™
Fundarherbergi fyrir fjórar manneskjur, sem er tilvalið til funda og samvinnu smærri teyma.

Framery Six™
Fundarherbergi fyrir sex manns, einstaklega hentugt til hugmyndafunda og samvinnu meðalstórra hópa.

Framery One Compact™
Vandaður klefi sem rúmar eina manneskju og allt það næði sem þörf er á í samskiptum í netheimum.

Framery One™
Vandaður klefi sem rúmar eina manneskju og allt það næði sem þörf er á í samskiptum í netheimum.

Tækninýjungar
Ný og spennandi tækni úr smiðju Framery eykur afköst, fjölbreytni og möguleika á vinnustaðnum. Tækifærum fjölgar með vandaðri rýmum, skilvirkari bókunarmöguleikum og betur nýttum tíma.
Framery App™
Finndu og bókaðu þitt vinnurými á einfaldan hátt.
Framery Office Sound Masking System™
Vertu laus við áreiti að utan og dragðu úr hljóðmengun út á við.
Framery Connect™
Byggðu vinnustaðinn á sterkum gagnagrunni.
Framery Conncet Sensor™
Sæktu gögn um notkun, hvar sem er á vinnustaðnum.
Komdu og prófaðu Framery
Sjón er sögu ríkari þegar kemur að því að umbreyta góðu vinnurými í framúrskarandi vinnustað framtíðar. Snjall-klefarnir eru til sýnis í húsgagnaverslun okkar í Askalind 2a, 201 Kópavogi.
Kynntu þér snjallklefana
Nánari upplýsingar
Snjallklefar
Um Framery
Snjall-næðisklefar
Næðisklefar
Myndir fyrir innblástur




